Stuðningur við nýsköpun í heimabyggð var í brennidepli þegar fulltrúar sveitarfélaga frá Eistlandi heimsóttu skrifstofur GeoSilica í Reykjanesbæ.
Þar tókum við á móti fulltrúum VIROL, samtaka sveitarfélaga í Lääne Viru í Eistlandi, þann 23. október.
Fida Abu Libdeh, stofnandi og framkvæmdastjóri GeoSilica, kynnti starfsemi fyrirtækisins og mikilvægi Uppbyggingarsjóðs Suðurnesja fyrir þróun þess.
. 
Í kynningunni rakti Fida vegferð GeoSilica frá námsverkefni til fyrirtækis sem vinnur verðmætan kísil úr jarðhitavatni og selur vörur á alþjóðlegum mörkuðum. Sérstök áhersla var lögð á hvernig stuðningur sjóðsins hefur nýst á ólíkum stigum, við vöruþróun, framleiðslu, hönnun, umbúðir og markaðssetningu.
Meginboðskapurinn var að litlir styrkir á réttum tíma geti haft mikil áhrif. Samfelldur stuðningur geti hjálpað fyrirtækjum að stíga næstu skref, sækja stærri styrki og skapa störf og verðmæti í heimabyggð.
Þrátt fyrir uppbyggingu á nýjum framleiðslustað á Þeistareykjum eru höfuðstöðvar GeoSilica áfram í Reykjanesbæ. Tengsl fyrirtækisins við Suðurnes, menntasamfélagið og stuðningsumhverfi svæðisins voru því einnig mikilvægur þáttur kynningarinnar.
Heimsóknin gaf tækifæri til að miðla íslenskri reynslu af nýsköpun og sýna hvernig staðbundinn stuðningur getur lagt grunn að alþjóðlegri starfsemi.
Nánar um heimsóknir hópsins hér: https://virol.ee/