Erindi í samstarfi við Nýsköpunarsjóð KRÍU og FKA

Að byggja eitthvað sem skiptir máli – Fida segir frá vegferð GeoSilica á nýsköpunarviku

Fida Abu Libdeh, stofnandi og framkvæmdastjóri GeoSilica, flutti á dögunum erindi í samstarfi við Nýsköpunarsjóðinn Kríu og FKA – Félag kvenna í atvinnulífinu, þar sem hún sagði frá vegferð GeoSilica – frá fyrstu hugmynd að íslensku nýsköpunarfyrirtæki og vörumerki á alþjóðlegum markaði.

Í erindinu deildi Fida reynslu sinni af því að byggja upp GeoSilica, þeim áskorunum og tækifærum sem fylgja frumkvöðlastarfi og hvernig hugmynd um að skapa verðmæti úr íslenskum jarðhita hefur þróast í fyrirtæki sem sameinar vísindi, nýsköpun og sjálfbæra nýtingu náttúruauðlinda.

 

Fida ásamt frábærum aðilum sem að héldu einnig erindi

 

Vegferð GeoSilica hefur frá upphafi einkennst af rannsóknum, vöruþróun og þeirri framtíðarsýn að nýta íslenskar auðlindir á nýjan og verðmætan hátt. Í dag eru vörur fyrirtækisins seldar bæði á Íslandi og erlendis og heldur GeoSilica áfram að þróa nýja möguleika fyrir íslenskan jarðhitakísil.

Það var sérstaklega ánægjulegt að sjá fullan sal af fólki með áhuga á íslenskri nýsköpun, frumkvöðlastarfi og uppbyggingu fyrirtækja.

Við þökkum Nýsköpunarsjóðnum Kríu og FKA fyrir gott samstarf og öllum þeim sem mættu og tóku þátt í kvöldinu.

 

   

 

 

Aftur á bloggsíðu