Fjölnýtingahúsið risið á Þeistareykjum

Nýtt fjölnýtingarhús GeoSilica risið á Þeistareykjum

Stór áfangi hefur náðst í uppbyggingu nýrrar starfsemi GeoSilica á Þeistareykjum, en fjölnýtingarhúsið sem mun hýsa starfsemi fyrirtækisins er nú risið af grunni og farið að taka á sig endanlega mynd.

Framkvæmdir við húsið hófust fyrr á árinu og hefur uppbyggingin gengið vel. Vinna við frágang innanhúss er nú hafin og verður húsið sérstaklega hannað með starfsemi GeoSilica og fjölnýtingu jarðhita í huga.

Unnið að húsnæðinu - mynd tekin í júní 2026

 

Framleiðsla, rannsóknir og nýsköpun undir einu þaki

Í húsinu verður meðal annars framleiðslurými og rannsóknarstofa með tækjabúnaði til að einangra steinefni úr auðlindastraumum jarðvarmavinnslu Þeistareykjastöðvar. Þar verður einnig skrifstofuaðstaða og gestastofa þar sem gestir munu geta horft yfir framleiðslurýmið og kynnt sér starfsemina.

GeoSilica hefur samið við Landsvirkjun um leigu á húsinu, afhendingu auðlindastrauma frá Þeistareykjum og samstarf til næstu ára. GeoSilica er jafnframt fyrsta fyrirtækið til að tryggja sér húsnæði á nýrri fjölnýtingarlóð Landsvirkjunar á Þeistareykjum.

Frá auðlindastraumi til verðmæta

Með starfseminni á Þeistareykjum fær GeoSilica aðgang að auðlindastraumum beint frá jarðvarmavinnslu svæðisins. Þar verður kísill einangraður úr jarðhitavökvanum og nýttur sem hráefni í áframhaldandi framleiðslu og vöruþróun fyrirtækisins.

Uppbyggingin er stórt skref í þeirri framtíðarsýn GeoSilica að nýta íslenskar jarðhitaauðlindir betur og umbreyta vannýttum auðlindastraumum í verðmætar afurðir.

Nýja aðstaðan mun jafnframt skapa aukin tækifæri til rannsókna, vöruþróunar og frekari nýsköpunar í kringum jarðhitakísil.

Það er því sérstaklega ánægjulegt fyrir okkur hjá GeoSilica að sjá húsið nú rísa og framtíðarsýn sem unnið hefur verið að um árabil verða að veruleika.

Við hlökkum til næstu skrefa og til að opna dyrnar að nýjum kafla í sögu GeoSilica á Þeistareykjum.

Sjá upprunalega frétt Landsvirkjunar

 

Aftur á bloggsíðu