Rannsóknar - & þróunarstyrkur Eurostars

Rannsóknar - & þróunarstyrkur Eurostars

GeoSilica hefur hlotið Eurostars rannsóknar- og þróunarstyrk fyrir alþjóðlegt samstarfsverkefni sem snýr að frekari nýtingu jarðhitakísils og þróun nýrra afurða. GeoSilica er eitt þriggja íslenskra fyrirtækja sem hlutu Eurostars-styrk í þessari úthlutun.

Verkefnið ber heitið „Endurheimtur á jarðhitakísli fyrir sjálfbæra fjölframleiðslu“ og er leitt af GeoSilica í samstarfi við þrjá ítalska samstarfsaðila; Demetra Italia, Tec Star og Institute of Science and Technology for Ceramics.

Nýjar leiðir til að nýta íslenskan jarðhitakísil

Markmið verkefnisins er að þróa áfram hráefni GeoSilica og kanna nýja möguleika á nýtingu jarðhitakísils í fjölbreyttar afurðir.

Sem hluti af verkefninu mun Tec Star, sem sérhæfir sig í framleiðslu nanóvökva og efna fyrir iðnað, vinna að þróun líförvandi efnis sem byggir á jarðhitakísli. Demetra Italia, sem sérhæfir sig í áburði og líförvandi efnum fyrir landbúnað, mun síðan prófa og þróa vöruna áfram með áherslu á mögulega nýtingu í landbúnaði.

Samhliða þeirri þróun mun GeoSilica vinna áfram að rannsóknum og þróun nýrra fæðubótarefna.

Verkefnið fellur vel að framtíðarsýn GeoSilica um að skapa aukin verðmæti úr íslenskum jarðhita og þróa sjálfbærar lausnir þar sem vísindi, nýsköpun og náttúruauðlindir Íslands fara saman.

Mikilvægt alþjóðlegt samstarf

Eurostars-áætlunin styður við rannsóknar- og þróunarstarf lítilla og meðalstórra fyrirtækja með það að markmiði að koma nýjum vörum, ferlum og þjónustu á markað. Tækniþróunarsjóður styrkir íslenska hluta verkefnisins.

Fida Abu Libdeh, stofnandi og framkvæmdastjóri GeoSilica, segir styrkinn mikilvægan áfanga fyrir fyrirtækið:

„Við hjá GeoSilica erum afar ánægð með að hafa fengið þennan styrk og hljóta tækifæri til að vinna með þessum frábæru samstarfsaðilum. Svona alþjóðlegt samstarf er ómetanlegt til að miðla þekkingu á milli fyrirtækja út fyrir landsteinana, efla alþjóðleg rannsókna- og þróunarverkefni og útvíkka tengslanet fyrirtækja.“

Styrkurinn og samstarfið skapa GeoSilica ný tækifæri til að byggja áfram á þeirri þekkingu og tækni sem fyrirtækið hefur þróað í kringum íslenskan jarðhitakísil og kanna hvernig nýta megi þessa einstöku auðlind á enn fjölbreyttari hátt.

 

Aftur á bloggsíðu