GeoSilica hefur hlotið styrk frá Lóu – nýsköpunarstyrkjum fyrir landsbyggðina fyrir verkefnið „Jarðhita nanó-kísill sem líförvandi efni til gróðurræktar.“
Styrkurinn er mikilvægur liður í áframhaldandi rannsókna- og þróunarstarfi GeoSilica og gerir fyrirtækinu kleift að þróa enn frekar nýjar leiðir til að nýta íslenskar jarðhitaauðlindir á sjálfbæran og verðmætan hátt.

Á myndinni má sjá Fidu Abu Libdeh,og Burkna Pálsson, stofnendur GeoSilica ásamt Italska Teyminu frá Demetra og Tec Star þar sem að þau skoðuðu framleiðslu stöðvar á Hellisheiði.
Nýir möguleikar fyrir jarðhitakísil í gróðurrækt
Verkefnið snýr að því að rannsaka og þróa möguleika jarðhita nanó-kísils sem líförvandi efnis í gróðurrækt. Það byggir á þeirri þekkingu og tækni sem GeoSilica hefur þróað á undanförnum árum við vinnslu og nýtingu kísils úr íslenskum jarðhita.
Markmiðið er að kanna hvernig nýta megi jarðhitakísil á nýjum sviðum og skapa verðmætar afurðir úr auðlindastraumum jarðvarmavinnslu. Verkefnið er þannig hluti af stærri framtíðarsýn GeoSilica um aukna fjölnýtingu jarðhita, nýsköpun og hringrásarhagkerfi.
Verkefnið byggir jafnframt á alþjóðlegu samstarfi og þeirri þekkingu sem orðið hefur til í samstarfi GeoSilica við ítalska sérfræðinga á undanförnum árum.
Mikilvægur stuðningur við nýsköpun á landsbyggðinni
Við hjá GeoSilica erum afar þakklát fyrir þann stuðning sem Lóa veitir nýsköpun á landsbyggðinni. Styrkir sem þessir skipta miklu máli fyrir fyrirtæki í rannsókna- og þróunarstarfi og skapa grundvöll fyrir áframhaldandi uppbyggingu, sérfræðiþekkingu og verðmætasköpun í heimabyggð.
Við þökkum Lóu og öllum sem komu að úthlutuninni kærlega fyrir traustið og hlökkum til að halda áfram þróun verkefnisins.