Það var nóg að gera hjá okkar stöllum, Fidu og Steinunni, í Indónesíu í síðustu viku en þær lögðu leið sína til Jakarta á Indonesia International Geothermal Convention & Exhibition (IIGCE) - ráðstefna þar sem íslenskar jarðhitalausnir voru í brennidepli.

Gestir sýndu GeoSilica vörunum mikinn áhuga, enda grunn uppspretta þess jarðvarmi (geothermal energy) en Indónesía á yfir að ráða gríðarlegum jarðhitaauðlindum og hefur sett sér metnaðarfull markmið um að nýta þær til að styðja við samfélagslega uppbyggingu með sjálfbærni í fyrirrúmi.

Með nánara samstarfi Íslands og Indónesíu – tveggja ólíkra landa sem þó deila reynslu í nýtingu jarðhita – skapast ný og spennandi tækifæri fyrir íslensk fyrirtæki á einum stærsta orkumarkaði heims.
