Enterprise Europe Network fjallar um nýsköpunarferðalag GeoSilica

Frá íslenskum jarðhita til alþjóðlegrar nýsköpunar – saga GeoSilica og REGEOSS

 

Enterprise Europe Network (EEN) á Íslandi hefur birt grein um nýsköpunarferðalag GeoSilica og REGEOSS-verkefnið, þar sem fjallað er um hvernig alþjóðlegt samstarf hefur skapað ný tækifæri til að nýta kísil úr íslensku jarðhitavatni á fjölbreyttum sviðum.

GeoSilica var stofnað árið 2012 með það að markmiði að nýta náttúruauðlindir Íslands á sjálfbæran hátt. Frá upphafi höfum við lagt áherslu á að þróa verðmætar afurðir úr kísli sem unninn er úr íslensku jarðhitavatni. Með árunum hefur starfsemin þróast frá framleiðslu fæðubótarefna yfir í umfangsmeiri rannsóknir á möguleikum kísils í landbúnaði, iðnaði og fleiri greinum.

 

Á meðfylgjandi með má sjá frá hægri: Burkna Pálsson meðstofnanda GeoSilica, Fidu Abu Libdeh stofnanda og CEO GeoSilica ásamt samstarfsaðilum REGEOSS verkefnisins frá rannsóknarstofnun CNR-ISSMC og fyrirtækin Tec Star og Demetra Italia.

Alþjóðlegt samstarf opnar nýjar dyr

Árið 2022 leituðum við til Enterprise Europe Network á Íslandi með það að markmiði að finna alþjóðlega samstarfsaðila fyrir rannsóknar- og þróunarverkefni.

Með aðstoð EEN og Mjallar Waldorff, ráðgjafa hjá Rannís, tókst að koma á samstarfi við ítölsku rannsóknastofnunina CNR-ISSMC og fyrirtækin Tec Star og Demetra Italia. Úr varð REGEOSS (Recovery of Geothermal Silica for Sustainable Multi-Productions), alþjóðlegt rannsóknarverkefni sem hlaut styrk úr Eurostars-áætluninni.

Nýir nýtingarmöguleikar jarðhitakísils

Í REGEOSS-verkefninu hefur verið rannsakað hvernig umbreyta megi kísli úr jarðhitavatni í verðmæt hráefni fyrir ólíkar atvinnugreinar.

Rannsóknirnar hafa meðal annars beinst að nýtingu kísils í landbúnaði, þar sem hann getur haft áhrif á þol og heilbrigði plantna, auk þróunar nýrra efna fyrir iðnað og möguleika á sviði heilsu- og snyrtivara.

Niðurstöður verkefnisins hafa skapað spennandi grundvöll fyrir frekari rannsóknir og vöruþróun, þar sem áhersla er lögð á sjálfbærni, nýsköpun og betri nýtingu auðlinda.

Framtíðin byggir á samstarfi og nýsköpun

Þátttakan í REGEOSS hefur styrkt rannsóknar- og þróunarstarf GeoSilica, aukið alþjóðlegt tengslanet fyrirtækisins og opnað ný tækifæri til framtíðar.

Við erum afar þakklát fyrir þann stuðning sem við höfum fengið frá Enterprise Europe Network, Rannís og samstarfsaðilum okkar í gegnum árin.

Lesa má grein Enterprise Europe Network í heild sinni hér:

Frá rannsóknarverkefni til alþjóðlegrar nýsköpunar: Saga GeoSilica og REGEOSS verkefnisins

Vefsíða REGEOSS verkefnisins 

Aftur á bloggsíðu