Nano Matters: Frá úrgangi til verðmæta (From Waste to Walue)
GeoSilica stóð á dögunum fyrir ráðstefnunni Nano Matters: From Waste to Value í Reykjavík, þar sem vísindafólk, frumkvöðlar og fulltrúar úr atvinnulífinu komu saman til að ræða nýsköpun, rannsóknir og framtíðarmöguleika jarðhitakísils. Tilkoma ráðtstefnunnar var að kynna REGEOSS verkefnið sem að GeoSilica hefur unnið að undanföru með samstarfsaðilum frá Ítalíu.

Frá vinstri: Fida Abu Libdeh - Stofnandi og eigandi GeoSilica, Alma Stefánsdóttir - sérfræðingur á deild þróunar og auðlinda jarðvarma hjá Landsvirkjun, Sólveig R. Gunnarsdóttir - CFO GeoSilica og eigandi Strata Advisory - Bríet Ósk Magnúsdóttir - Nýsköpunarstjóri hjá Landsvirkjun.

Halla Hrund Logadóttir, fyrrum Orkumálastjóri og Alþingismaður
Á ráðstefnunni var meðal annars fjallað um verðmæti kísils sem fellur til við nýtingu jarðhita og hvernig hægt er að nýta þessa auðlind enn betur. Sérstök áhersla var lögð á möguleika jarðhitakísils í sjálfbærri nýsköpun, iðnaði og landbúnaði og hvernig rannsóknir og samstarf geta stuðlað að því að umbreyta vannýttum auðlindum í verðmætar afurðir.

Dr. Leonardo Rettighieri, tæknistjóri Tec Star S.r.l. og lykilsamstarfsaðili í REGEOSS-verkefninu
Við hjá GeoSilica viljum þakka öllum þeim sem tóku þátt og lögðu sitt af mörkum til ráðstefnunnar, þar á meðal fulltrúum frá Rannís, Landsvirkjun, HS Orku, Orkuveitunni, Háskóla Íslands og Iceland School of Energy við Háskólann í Reykjavík, auk alþjóðlegra samstarfsaðila okkar í REGEOSS verkefninu frá Ítalíu: Tec Star S.r.l., Demetra Italia srl og Institute of Science, Technology and Sustainability for Ceramics – National Research Council (ISSMC).

Giacomo Dal Pozzo og Caterina Pelliconi - lykilaðilar í REGEOSS-verkefninu og fulltrúar DEMETRA ITALIA S.R.L.
Þekking, rannsóknir og samtal þátttakenda gerðu daginn einstaklega verðmætan og færðu okkur skrefi nær því að tengja saman vísindi, nýsköpun og atvinnulíf.
Við erum stolt af því að vera hluti af þessari vegferð. Dagar sem þessir minna okkur á hversu öflugt nýsköpunarsamfélagið getur verið þegar ólíkir aðilar sameina krafta sína – bæði hér á Íslandi og á alþjóðavettvangi.
Vefsíða REGEOSS Verkefnisins - https://www.regeoss.eu/