Hönnunarþing á Húsavík

Á dögunum fór fram Hönnunarþing á Húsavík þar sem Fida Abu Libdeh, stofnandi og framkvæmdastjóri GeoSilica, hélt erindi um það sem gerist þegar jarðvarmi, nýsköpun og hönnun mætast.

  

Erindi Fidu var byggt í kringum áhugaverða spurningu: Hvað fleira getum við hannað úr jarðvarmanum? 


Við erum vön að hugsa um jarðvarma fyrst og fremst sem uppsprettu hita og rafmagns - en möguleikarnir ná mun lengra.  Hjá GeoSilica fær jarðhitavatnið framhaldslíf. Með rannsóknum, nýsköpun og hátæknilausnum vinnum við verðmæt steinefni úr jarðhitavatni sem annars væru vannýtt og umbreytum þeim í vörur sem rata alla leið til neytenda. En góð tækni ein og sér er ekki nóg. Hönnun gegnir mikilvægu hlutverki í að brúa bilið á milli vísinda og neytenda - að segja söguna, skapa upplifun og gera flókna tækni að einhverju sem fólk skilur, tengir við og vill nota.

 

Eins og sjá má var glatt á hjalla og góð stemning meðal gesta. Fida og Sólveig, fjármálastjóri GeoSilica, létu sig ekki vanta í gleðina! Myndirnar tók Halldóra Kristín. 

 



Á myndinni með Fidu er Katrín Sigurjónsdóttir, sveitarstjóri Þingeyjarsveitar, 
sem tók einstaklega vel á móti okkur.

Takk fyrir okkur, Hönnunarþing og fyrir að skapa vettvang fyrir samtal um hönnun, nýsköpun og nýjar leiðir til að nýta þær einstöku auðlindir sem við búum yfir á Íslandi. Myndband Hraðsins um viðburðinn má sjá hér

Aftur á bloggsíðu