Kísill og húðheilsa – hvað segja rannsóknir?

 

Kísill er náttúrulegt efni sem finnst víða í umhverfinu og einnig í mannslíkamanum. Undanfarin ár hefur kísill vakið áhuga vísindamanna vegna mögulegra tengsla við uppbyggingu og eiginleika húðarinnar.

 

Hvað segja rannsóknir um kísil og húð?

Í nokkrum smærri klínískum rannsóknum hafa ákveðin form kísils verið rannsökuð með tilliti til áferðar, rakastigs og teygjanleika húðar.

Í rannsókn Barel og samstarfsfólks (2005) tóku 50 konur með sólskemmda húð þátt í 20 vikna rannsókn. Konurnar fengu annaðhvort kísil í formi kólínstöðgaðrar ortókísilsýru (ch-OSA) eða lyfleysu. Niðurstöðurnar sýndu meðal annars jákvæðar breytingar á mælikvörðum fyrir grófleika húðar og vélræna eiginleika hennar hjá hópnum sem fékk kísil.

Heimild: Barel o.fl. (2005) – Effect of oral intake of choline-stabilized orthosilicic acid on skin, nails and hair in women with photodamaged skin.

Í yfirlitsgrein Araújo og samstarfsfólks (2016) voru teknar saman rannsóknir á mismunandi formum kísils og mögulegum tengslum hans við húð og hár. Höfundarnir bentu á áhugaverðar niðurstöður, en lögðu jafnframt áherslu á að frekari klínískar rannsóknir væru nauðsynlegar.

Heimild: Araújo o.fl. (2016) – Use of silicon for skin and hair care: an approach of chemical forms available and efficacy.

Þessar niðurstöður gefa tilefni til frekari rannsókna, en ekki er hægt að yfirfæra þær sjálfkrafa á allar tegundir kísils eða fæðubótarefni sem innihalda kísil.

 

 

Kísill, exem og psoriasis

Exem og psoriasis eru húðsjúkdómar sem geta haft áhrif á lífsgæði fólks. Þótt kísill hafi verið rannsakaður í tengslum við eiginleika húðarinnar liggja ekki fyrir nægilegar klínískar sannanir fyrir því að inntaka hans eða staðbundin notkun geti meðhöndlað þessa sjúkdóma.

Mikilvægt er að greina á milli rannsókna á almennum eiginleikum húðar og rannsókna á meðferð tiltekinna húðsjúkdóma.

 

Hér er hægt að lesa fæðslugrein GeoSilica sem að einblínir á áhrif kísils fyrir alhliða heilsu, hár, húð og neglur. 

 

 

Ef þig vantar hjálp við val á vöru er hægt að hafa samband í gegnum tölvupóst geosilica@geosilica.com 

Aftur á bloggsíðu