Ef þú ert dugleg/ur að hreyfa þig yfir sumarið eða lifir almennt virkum og heilbrigðum lífsstíl allt árið um kring, gætirðu þurft að huga sérstaklega að magnesíuminntöku þinni. Í hlýrra veðri svitnum við meira og það getur haft áhrif á vökva- og steinefnajafnvægi líkamans.
Af hverju er magnesíum mikilvægt?
Magnesíum stuðlar að:
- eðlilegu saltajafnvægi (electrolyte balance)
- eðlilegri starfsemi vöðva
- að draga úr þreytu og örmögnun
Einkenni þess að fá ekki nóg magnesíum
Magnesíumskortur er sjaldgæfur hjá heilbrigðum einstaklingum, en lítil inntaka yfir lengri tíma getur tengst einkennum á borð við:
- Vöðvakrampa eða vöðvakippi
- Þreytu
- Lítið orkustig
- Erfiðari bata eftir líkamlega áreynslu
Ef þú hefur áhyggjur af magnesíumbúskap líkamans er alltaf best að leita ráðgjafar hjá heilbrigðisstarfsfólki.
Hvar kemur kísillinn inn?
GeoSilica RECOVER fyrir vöðva og taugar sameinar magnesíum og náttúrulegan fljótandi kísil sem unninn er úr íslensku jarðhitavatni.
Kísill er snefilsteinefni sem finnst náttúrulega í líkamanum, sérstaklega í bandvef eins og húð, beinum, brjóski og æðum. Með því að sameina kísil og magnesíum í þægilegu vökvaformi býður GeoSilica RECOVER upp á einfalda leið til að styðja við daglega magnesíuminntöku yfir sumarið.
Varan er einnig í vökvaformi, sem hentar vel þeim sem eiga erfitt með að kyngja töflum eða hylkjum og vilja þægilega leið til að taka inn dagleg steinefni.

RECOVER fyrir vöðva og taugar inniheldur 100mg af kísili og 215mg af Magnesium
GeoSilica RECOVER fyrir vöðva og taugar hentar vel þeim sem lifa virkum lífsstíl, stunda reglulega hreyfingu eða vinna líkamlega krefjandi störf. Varan er sérstaklega ætluð þeim sem finna fyrir vöðvaþreytu, stirðleika eða spennu og vilja styðja við eðlilega starfsemi vöðva- og taugakerfisins ásamt endurheimt eftir álag. Hún hentar einnig þeim sem eru mikið á fótum eða vilja styðja við daglega vellíðan líkamans á náttúrulegan hátt. Ekki er ráðlagt að neyta vörunnar á meðgöngu, en hún má nota samhliða brjóstagjöf.