Undanfarin misseri hefur GeoSilica haldið nokkra Bestar á Breytó fræðsluviðburði í samstarfi við Röggu Nagla, þar sem konur koma saman til að fræðast um breytingaskeiðið, hreyfingu, næringu og leiðir til að styðja við líkamann á þessu tímabili.
Viðburðirnir hafa fengið einstaklega góðar viðtökur. Meðal þeirra var Bestar á Breytó í Hveragerði, sem haldinn var á Hótel Örk, þar sem yfir 70 konur mættu og áttu saman fræðandi og skemmtilegt kvöld.

Þá bauð Sveitarfélagið Vogar okkur einnig heim, þar sem Ragga Nagli hélt sinn sívinsæla fyrirlestur Bestar á Breytó. Fida Abu Libdeh, stofnandi GeoSilica, tók einnig til máls og fræddi gesti um kísil og steinefni, hlutverk þeirra í líkamanum og hvernig þau geta stutt við líkamann á breytingaskeiðinu – og raunar í gegnum öll skeið lífsins.
Við hjá GeoSilica erum þakklát fyrir að fá að skapa rými þar sem konur geta komið saman, fræðst, deilt reynslu og átt opið samtal um breytingaskeiðið. Góðar viðtökur viðburðanna sýna jafnframt hversu mikill áhugi er á aðgengilegri og hagnýtri fræðslu um þetta mikilvæga lífsskeið.
Á viðburðunum hefur einnig skapast skemmtileg hefð í kringum það sem við köllum gjarnan „þrennu breytingaskeiðsins“ – RENEW, RECOVER og REPAIR – en sú samsetning hefur notið mikilla vinsælda meðal gesta og varð í raun óvart til!

Við færum Röggu Nagla og öllum þeim sem hafa komið að viðburðunum okkar bestu þakkir. Við hlökkum til að halda áfram með Bestar á Breytó x GeoSilica og skapa fleiri tækifæri fyrir konur til að koma saman, fræðast og efla eigin vellíðan.
Ef þú hefur áhuga á að bjóða upp á Bestar á Breytó fyrir konur í þínu samfélagi – hvort sem það er á vinnustað, fyrir æfingahóp, félagasamtök eða annan hóp – þá værum við spenntar að heyra frá þér.
Fyrir nánari upplýsingar og fyrirspurnir má hafa samband við okkur í gegnum netfangið geosilica@geosilica.com.