Fida Abu Libdeh í panelumræðum um jafnt aðgengi

Fida Abu Libdeh tók þátt í panelumræðum um jafnt aðgengi

Fida Abu Libdeh, stofnandi og framkvæmdastjóri GeoSilica, tók þátt í panelumræðum á viðburðinum Jafnt aðgengi / Equal Access, sem haldinn var í Bókasafni Kópavogs þann 30. apríl.

Viðburðurinn var haldinn á vegum W.O.M.E.N. in Iceland – Samtaka kvenna af erlendum uppruna á Íslandi og lagði áherslu á þátttöku, jafnrétti og aðgengi kvenna af erlendum uppruna að tækifærum í íslensku samfélagi.

 

Á viðburðinum skapaðist vettvangur fyrir opnar og mikilvægar umræður um þær áskoranir og þau tækifæri sem konur af erlendum uppruna mæta á Íslandi, meðal annars þegar kemur að þátttöku í atvinnulífi og samfélaginu almennt.

Fida hefur sjálf byggt GeoSilica upp frá hugmynd að íslensku nýsköpunarfyrirtæki og var því sérstaklega ánægjulegt að fá tækifæri til að taka þátt í samtalinu og deila sinni reynslu.

Við hjá GeoSilica þökkum W.O.M.E.N. in Iceland fyrir mikilvægan og vel heppnaðan viðburð og fyrir að skapa vettvang fyrir samtal sem skiptir máli.

 

Back to blog