GeoSilica hefur framleiðslu á Þeistareykjum

GeoSilica hefur framleiðslu á Þeistareykjum

GeoSilica hefur undirritað samning við Landsvirkjun um leigu á nýju húsnæði á fjölnýtingarlóð Landsvirkjunar á Þeistareykjum, afhendingu auðlindastrauma frá jarðvarmavinnslu svæðisins og samstarf til næstu ára.

Samningurinn markar stór tímamót í sögu GeoSilica og er jafnframt upphaf fjölnýtingar á Þeistareykjum til framtíðar. Stefnt er að því að starfsemi GeoSilica á svæðinu hefjist á næstu misserum.

 

Ríkarður S. Ríkarðsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaþróunar og nýsköpunar hjá Landsvirkjun, Fida Abu Libdeh, framkvæmdastjóri GeoSilica og Bjarni Pálsson, framkvæmdastjóri Vinds og jarðvarma hjá Landsvirkjun, undirrita samstarfssamning fyrirtækjanna.

 

Frá jarðhita til verðmætra steinefna

GeoSilica var stofnað af Fida Abu Libdeh árið 2012 með það að markmiði að þróa leiðir til að nýta verðmæt steinefni úr jarðhitavatni á Íslandi.

Í dag framleiðir GeoSilica náttúruleg fæðubótarefni í vökvaformi þar sem íslenskur kísill er í lykilhlutverki. Vörurnar eru 100% náttúrulegar og vegan-vottaðar og byggir framleiðslan á áralangri þróun og rannsóknum á nýtingu kísils úr íslenskum jarðhita.

Með nýju starfseminni á Þeistareykjum mun GeoSilica fá aðgang að auðlindastraumum beint frá jarðvarmavinnslu Þeistareykjastöðvar. Kísill úr jarðhitavökvanum verður unninn og nýttur til framleiðslu, sem skapar tækifæri til að auka umfang starfseminnar og þróa nýjar leiðir til verðmætasköpunar úr auðlind sem annars væri vannýtt.

Samstarfið er því mikilvægt skref í þeirri framtíðarsýn GeoSilica að umbreyta vannýttum auðlindastraumum jarðvarmavinnslu í verðmætar afurðir og stuðla um leið að aukinni fjölnýtingu og hringrásarhagkerfi á Íslandi.

„Stærri áfangi en margir gera sér grein fyrir“

Fida Abu Libdeh, stofnandi og framkvæmdastjóri GeoSilica:

„Fyrir okkur hjá GeoSilica er þetta stærri áfangi en margir gera sér grein fyrir. Þegar við hófum starfsemi var framtíðarsýnin skýr – að þróa sjálfbæra tækni sem nýtir íslenskar auðlindir án eiturefna, án sóunar og með virðingu fyrir náttúrunni. Nú er sá draumur að verða að veruleika.

Með þessu samstarfi við Landsvirkjun fáum við einstakt tækifæri til að skala upp tækni sem umbreytir úrgangi í verðmæti, skapar störf í heimabyggð og styður við raunverulegt hringrásarhagkerfi.

Við erum nýsköpunarfyrirtæki sem sameinar vísindi og náttúru og með þessu verkefni getum við framleitt mikilvæg steinefni á náttúrulegan, hreinan og kolefnishlutlausan hátt hér á Íslandi. Þetta er stórt skref, ekki aðeins fyrir GeoSilica heldur einnig fyrir íslenska nýsköpun, græna atvinnuuppbyggingu og sjálfbæra framtíð.

Við teymið hjá GeoSilica viljum þakka Landsvirkjun fyrir traust, gagnsæi og einlægan vilja til að byggja upp framtíðarsýn sem sameinar orku, tækni og samfélagslega ábyrgð. Við hlökkum til að halda áfram þessu mikilvæga samstarfi.“

Fyrir GeoSilica markar samstarfið upphaf að nýjum kafla í sögu fyrirtækisins. Með starfseminni á Þeistareykjum skapast aukin tækifæri til framleiðslu, rannsókna og þróunar og til að nýta íslenskar jarðhitaauðlindir á enn fjölbreyttari og verðmætari hátt.

 

Back to blog