GeoSilica hlýtur alþjóðlega viðurkenningu fyrir íslenska nýsköpun


GeoSilica hlaut nýverið Bronze Recognition á alþjóðlegri nýsköpunarsýningu í Silicon Valley, sem haldin var í samstarfi við IFIA – International Federation of Inventors’ Associations (https://ifia.com/). 

Silicon Valley International Invention Festival 2026 (SVIIF) fór fram í Santa Clara í
Kaliforníu dagana 14.–16. ágúst. Þar voru kynntar meira en 400 uppfinningar og
nýsköpunarverkefni frá 31 landi og sóttu hátíðina rúmlega 4.000 skráðir gestir.
Hátíðin fór fram í Santa Clara Convention Center og laðaði að sér uppfinningamenn,
vísindamenn, háskólafólk, unga frumkvöðla, fyrirtæki, fjárfesta og fulltrúa alþjóðlegra
stofnana. Áhersla var lögð á faglegt mat verkefna, kynningu nýrrar tækni og tengslamyndun milli þátttakenda frá ólíkum löndum.

 


Íslensku frumkvöðlarnir sem hlutu viðurkenningar.

 

Alþjóðleg dómnefnd skipuð 22 sérfræðingum mat verkefnin á tveimur dögum. John Calvert var forseti dómnefndarinnar og Dr. Amin Ghafooripour stýrði matsferlinu. Elinóra Inga Sigurðardóttir var eina f dómurum sýningarinnar. Meðal þess sem tekið var til skoðunar var frumleiki, vísindalegt og tæknilegt gildi, þróunarstig, hagnýtingarmöguleikar og möguleikar á markaðssetningu.

Formleg opnunarathöfn fór fram 14. ágúst að viðstaddri Lisu Gillmor, borgarstjóra Santa
Clara, stjórnendum hátíðarinnar, dómurum og alþjóðlegum sendinefndum. Að henni lokinni
skoðaði borgarstjórinn sýninguna og ræddi við þátttakendur.

SVIIF naut stuðnings International Federation of Inventors’ Associations (IFIA),
Alþjóðahugverkastofnunarinnar WIPO og United Inventors Association of America (UIA).
Æðstu verðlaun hátíðarinnar, Grand Prix SVIIF 2026, hlaut Dr. Simson Wu frá Amonova
Limited í Bretlandi fyrir tækni sem nýtir sólarorku við framleiðslu á áburði úr efnum í
andrúmsloftinu.


Grand Prix ungmennadeildar hlaut hópur ungra uppfinningamanna frá Taívan fyrir
„AllerDetect GO“, gervigreindarkerfi til greiningar á ofnæmisvöldum.
Semi-Grand Prix-verðlaun féllu meðal annars í hlut verkefna frá Kína, Sádi-Arabíu,
Aserbaídsjan, Taílandi og Suður-Kóreu. WIPO, IFIA og UIA veittu jafnframt sérstök
verðlaun fyrir verkefni á sviði heilbrigðis, gervigreindar, verkfræði, öryggis og
umhverfismála. 

 

Hátíðinni lauk 16. ágúst með Grand Prix- og sérverðlaunaathöfn þar sem uppfinningamenn, ungmenni, fyrirtæki og rannsóknarteymi voru heiðruð fyrir framúrskarandi verkefni. Samhliða þessum viðburði bauðst aðildarlöndum IFIA að setja upplýsingar um uppfinningar í bók sýningarinnar. Ísland var með 12 uppfinningar sem allar fengu ýmist brons, silfur eða gull viðurkenningu. Tvær konur hlutu gullið en það eru þær Halla Jónsdóttir og hennar teymi sem eru með uppfinningu í tengslum við ljós í veiðarfærum og Julie Encausse og hennar teymi fyrir húðun á grænmeti unnið úr þörungum. Aðrir sem fá viðurkenningu fyrir sína hugverkavernd eru: Guðmundur Fertram Sigurjónsson fyrir Kerecis, Fida Abu Libdeh fyrir Geosilica, Dr.Þorbjörg Jensdóttir fyrir Hap+, Valdimar Össurarson fyrir Valorku, Kristján Björn Ómarsson fyrir TCT, Ólafur Jónsson fyrir Geothermal Energy System, Margrét Júlíana Sigurðardóttir fyrir Moombix og Mussila, Kári Stefánsson fyrir deCode genetics og Sunna Ólafsdóttir Wallevik, Dr.Sigrún Nanna Karlsdóttir og Dr.Kristján Alexandersson fyrir Gerosion og Álvit.

Nánar má sjá um uppfinningarnar hér

Sólveig R. Gunnarsdóttir, CFO, tók við viðurkenningunni fyrir hönd GeoSilica. Viðurkenningin er ánægjuleg staðfesting á þeirri íslensku hugvitssemi og nýsköpun sem hefur frá upphafi verið kjarninn í starfsemi GeoSilica. Viðurkenningin tengist einkaleyfi GeoSilica og þeirri nýsköpun sem liggur að baki GeoStep-tækninni, sem gerir kleift að nýta kísil úr jarðhitavatni og umbreyta honum í verðmæta afurð.

 

.

Frá íslenskri jarðhitaauðlind til alþjóðlegrar viðurkenningar! 🌍

 

 

 

Back to blog