GeoSilica mótið 2026 – Myndband

 

GeoSilica mótið var haldið í tíunda sinn í febrúar 2026, en við hjá GeoSilica erum stoltur styrktaraðili kvennaknattspyrnunnar í Keflavík.

Af því tilefni mættu Krakkamótin með Nablanum á svæðið og fönguðu stemninguna á mótinu í skemmtilegu myndbandi.

GeoSilica mótið er haldið ár hvert fyrir ungar knattspyrnustúlkur og hefur frá upphafi lagt áherslu á samstöðu, gleði, þátttöku og jákvæða upplifun fyrir stelpurnar – bæði innan og utan vallar.

Við erum ótrúlega stolt af því að hafa stutt við mótið í gegnum árin og tekið þátt í að skapa vettvang þar sem ungar íþróttakonur geta komið saman, keppt, skemmt sér og skapað góðar minningar. 

 

Back to blog