GeoSilica mótið haldið í tíunda sinn!

GeoSilica mótið haldið í tíunda sinn!

Við hjá GeoSilica erum stoltur styrktaraðili kvennaknattspyrnunnar í Keflavík. GeoSilica mótið er haldið ár hvert fyrir stúlkur í 5., 6. og 7. flokki en við leggjum okkur fram við að gera daginn eftirminnilegan fyrir þær allar. Að loknu móti fá stúlkurnar gjöf frá GeoSilica sem tákn um þátttökuna og samstöðu.

Í ár var gjöfin sérstök en stelpurnar fengu sérhönnuð sólmyrkvagleraugu 🌒✨

 

.


Sólmyrkvi minnir okkur á að jafnvel þegar skyggir á, þá er ljósið alltaf til staðar. Það er falleg táknmynd fyrir íþróttir - stundum mætum við áskorunum, töpum leik eða þurfum að leggja meira á okkur, en með samstöðu, þrautseigju og sjálfstrausti skínum við aftur.

👉 Næsti almyrkvi á sólu sem sést frá Íslandi verður miðvikudaginn 12. ágúst 2026. Þetta verður einstök sýning og fyrsti almyrkvi sem Íslendingar sjá frá landi síðan 1954 – þ.e. í yfir 70 ár! 🤩 Við hvetjum því stelpurnar að koma saman og upplifa þennan einstaka viðburð í sameiningu.

Frétt Víkurfrétta um mótið má lesa hér:
https://lnkd.in/e9bxVxRn

Meira um Sólmyrkvann 2026: https://lnkd.in/ekax87cP

Sérstaka þakkir fær Sævar Helgi Bragarson fyrir að aðstoða okkur við gerð glerauganna og fyrir frábæra þjónustu. Allur ágóði af gleraugnasölunni rennur í fræðsluverkefni fyrir börn og fullorðna um sólmyrkvann og mikilvægi öruggrar áhorfs 😎

 

Back to blog