Samstarf um nýtingu jarðhitakísils í innanhússræktun
GeoSilica Iceland og VAXA hafa hafið spennandi samstarf um prófun á nanókísli úr íslensku jarðhitavatni í innanhússræktun. Markmið samstarfsins er að kanna hvort kísillinn geti styrkt plöntur, aukið uppskeru og lengt geymsluþol grænmetis sem ræktað er allt árið um kring á Íslandi.
Frá íslenskri jarðvarmaauðlind til matvælaframleiðslu
Fyrsta tilraunin fer fram í ræktunarstöð VAXA í Reykjavík. Kísli frá GeoSilica verður bætt út í næringarvatn plantnanna og niðurstöðurnar bornar saman við hefðbundna ræktun án viðbætts kísils.
Meðal þess sem verður rannsakað eru áhrif kísilsins á uppskeru, næringar nýtingu, álagsþol plantna og geymsluþol afurðanna.
. 
Byggt á alþjóðlegum rannsóknum
Samstarfið byggir á rannsóknum úr REGEOSS-verkefninu, þar sem GeoSilica hefur unnið með ítölskum samstarfsaðilum að því að kanna nýja nýtingarmöguleika jarðhitakísils.
Í verkefninu var kísill GeoSilica meðal annars prófaður á tómötum, salati, kíví plöntum og vínviði. Niðurstöðurnar gáfu vísbendingar um aukna kísil upptöku, betra álagsþol plantna og minna þyngdartap við geymslu.
Með samstarfinu við Vaxa verður nú kannað hvort sambærileg áhrif komi fram við íslenskar ræktunaraðstæður.
Ný tækifæri í sjálfbærri nýtingu auðlinda
„Þetta samstarf tengir nýtingu jarðvarma við íslenska matvælaframleiðslu. Kísill sem getur valdið vandamálum í rekstri jarðvarmavirkjana getur jafnframt orðið verðmætt hráefni. Með þessari tilraun viljum við kanna hvernig hann getur stutt við öfluga og sjálfbæra ræktun,“ segir Fida Abu Libdeh, stofnandi og framkvæmdastjóri GeoSilica.
Verkefnið nýtur stuðnings Uppbyggingarsjóðs Suðurnesja og Lóu nýsköpunarstyrkja. Ef niðurstöður fyrstu tilraunarinnar verða jákvæðar er stefnt að umfangsmeiri rannsóknum í framhaldinu.
Samstarfið er liður í áframhaldandi rannsóknum GeoSilica á fjölbreyttum nýtingarmöguleikum kísils úr íslensku jarðhitavatni og hvernig umbreyta megi auðlindum í verðmæt hráefni fyrir nýjar atvinnugreinar.