Styrkur frá Uppbyggingasjóði Suðurnesja

Styrkur frá Uppbyggingasjóði Suðurnesja

GeoSilica hefur hlotið styrk úr Uppbyggingarsjóði Suðurnesja fyrir árið 2026 fyrir verkefni sem snýr að vinnslu nanó-kísils úr jarðhita og prófunum á nýtingu hans í landbúnaði.

Verkefnið er liður í áframhaldandi rannsóknum og þróun GeoSilica á verðmætum afurðum úr jarðhita, með áherslu á nýsköpun, sjálfbærni og aukna nýtingu auðlinda sem falla til við jarðhitanýtingu.

 

Styrkurinn mun styðja við frekari þróun og prófanir á nanó-kísli og möguleikum hans innan landbúnaðar.

 

Uppbyggingarsjóður Suðurnesja gegnir mikilvægu hlutverki í að efla atvinnulíf, nýsköpun og samfélagsþróun á svæðinu. Stuðningur sem þessi skiptir miklu máli fyrir fyrirtæki í þróunar- og nýsköpunarstarfi og styrkir okkur hjá GeoSilica í áframhaldandi uppbyggingu og metnaðarfullum verkefnum á Suðurnesjum.

Við færum Uppbyggingarsjóði Suðurnesja og Sambandi sveitarfélaga á Suðurnesjum okkar bestu þakkir fyrir stuðninginn og traustið.

Við óskum jafnframt öllum styrkþegum ársins innilega til hamingju. Fram undan eru spennandi verkefni sem eiga eftir að stuðla að áframhaldandi þróun, nýsköpun og öflugu samfélagi á Suðurnesjum.

Back to blog