Svanni fjallar um frumkvöðlaferðalag GeoSilica

Frá hugmynd til veruleika – Svanni fjallar um frumkvöðlaferðalag GeoSilica

Svanni – lánatryggingasjóður kvenna birti á dögunum viðtal við Fidu Abu Libdeh, stofnanda og framkvæmdastjóra GeoSilica, þar sem hún segir frá upphafi fyrirtækisins, áskorunum í frumkvöðlastarfi og þeim spennandi tækifærum sem fram undan eru.

GeoSilica var stofnað árið 2012 út frá þeirri hugmynd að nýta mætti íslenskt jarðhitavatn á nýjan og verðmætan hátt. Það sem áður var talið áskorun í jarðhitavinnslu varð að grunninum að nýsköpunarfyrirtæki sem í dag framleiðir fæðubótarefni úr íslenskum jarðhitakísli og vinnur að frekari rannsóknum og þróun á nýtingarmöguleikum auðlindarinnar.

Stuðningur Svanna á mikilvægum tímamótum

Í viðtalinu fjallar Fida meðal annars um mikilvægi fjármögnunar og þess að hafa öfluga bakhjarla þegar byggja á upp nýsköpunarfyrirtæki.

Svanni hefur stutt við GeoSilica á tveimur mikilvægum tímamótum, fyrst árið 2018 þegar fyrirtækið tók sín fyrstu stóru skref í átt að auknum umsvifum og nú aftur þegar GeoSilica undirbýr næsta vaxtarskeið með uppbyggingu starfsemi á Þeistareykjum.

Nýr kafli í sögu GeoSilica

Fram undan er eitt stærsta skrefið í sögu GeoSilica, en fyrirtækið hefur gert 15 ára samning við Landsvirkjun um aðgengi að hráefni á Þeistareykjum. Þar er unnið að uppbyggingu sem mun skapa grundvöll fyrir aukna framleiðslugetu og frekari vöxt, bæði hér á landi og erlendis.

 

Undirritun samnings Landsvirkjunar og GeoSilica í maí 2025.

 

Í viðtalinu deilir Fida einnig reynslu sinni af frumkvöðlastarfi, mikilvægi þrautseigju og þeim lærdómi sem fylgir því að byggja fyrirtæki frá grunni. Hún hvetur sérstaklega konur með viðskiptahugmyndir til að þora að taka fyrsta skrefið, jafnvel þótt ekki séu öll svörin komin.

Við hjá GeoSilica erum afar þakklát fyrir þann stuðning og það traust sem Svanni hefur sýnt okkur í gegnum árin og hlökkum til að takast á við næsta kafla í sögu fyrirtækisins.

Lesa má viðtalið við Fidu í heild sinni á vefsíðu Svanna.

Back to blog