Kísill og Beinheilsa: Hvað segja rannsóknir?

Kísill og beinheilsa – hvað segja rannsóknir?

Kísill er náttúrulegt snefilefni sem finnst bæði í umhverfinu og mannslíkamanum, meðal annars í beinum, húð, hári og nöglum. Á undanförnum áratugum hafa rannsóknir skoðað mögulegt hlutverk kísils í líkamanum og þá sérstaklega tengsl hans við beinheilsu, kollagen og bandvef.

Árið 2015 birtu Rodella og samstarfsfólk yfirlitsgrein þar sem farið var yfir 38 rannsóknir á kísilinntöku og beinefnaskiptum, sem birtar höfðu verið á árunum 1972–2013. Í heild bentu niðurstöðurnar til áhugaverðra tengsla milli kísilinntöku og ferla sem tengjast uppbyggingu og endurnýjun beina.

 

 

Hvernig fáum við kísil úr fæðunni?

Kísill er annað algengasta frumefnið í jarðskorpunni og fæst meðal annars úr daglegu mataræði. Kornvörur á borð við hafra, bygg, hveiti og hrísgrjón eru dæmi um fæðutegundir sem innihalda kísil.

Eitt af þeim formum kísils sem líkaminn getur tekið upp er orthokísilsýra (Orthosilicic Acid / OSA). Form kísilsins hefur áhrif á lífvirkni (bioavailability) hans, þ.e. hversu aðgengilegur hann er fyrir upptöku og nýtingu líkamans.

Samkvæmt yfirlitsgreininni er dagleg inntaka kísils í vestrænum löndum almennt á bilinu 20–50 mg.

Kísill, kollagen og sterkari bein

Bein eru lifandi vefur sem er stöðugt að endurnýjast. Beinheilsa ræðst af mörgum þáttum, þar á meðal aldri, erfðum, hormónum, næringu og hreyfingu.

Rannsóknir hafa meðal annars skoðað mögulegt hlutverk kísils í ferlum sem tengjast myndun og stöðugleika kollagens og steinefnamyndun beina.

Kollagen er mikilvægur hluti af uppbyggingu beina og bandvefs og því hafa tengsl kísils, kollagens og beina vakið áhuga vísindamanna.

Kísill og beinþynning

Í yfirlitsgreininni voru meðal annars skoðaðar rannsóknir á beinþynningu og kísilinntöku. Beinþynning einkennist af minnkuðum beinmassa og aukinni hættu á beinbrotum og verður algengari með hækkandi aldri.

Niðurstöður þeirra rannsókna sem teknar voru saman benda til þess að tengsl geti verið á milli kísils og ýmissa ferla sem skipta máli fyrir uppbyggingu beina. Frekari rannsókna er þó þörf til að skilja þessi tengsl betur.

Það er því ekki hægt að segja að kísil fæðubót komi í veg fyrir eða meðhöndli beinþynningu. Beinheilsa byggist á heildarmyndinni þar sem meðal annars næring, hreyfing og nægilegt magn nauðsynlegra vítamína og steinefna skipta máli.

Hvað segja rannsóknirnar okkur?

Greinin sýnir að kísill er áhugavert rannsóknarefni þegar kemur að beinum, kollageni og bandvef og að ástæða er til að rannsaka hlutverk hans í beinheilsu enn frekar.

Fyrir okkur hjá GeoSilica er einmitt þessi þekking á kísli og eiginleikum hans hluti af grunninum að þeirri vöruþróun og rannsóknum sem við höfum unnið að frá stofnun fyrirtækisins.

Heimild

Rodella, L.F., Bonazza, V., Labanca, M., Lonati, C. & Rezzani, R. (2015). A review of the effects of dietary silicon intake on bone homeostasis and regeneration. The Journal of Nutrition, Health & Aging, 18, 820–826. doi: 10.1007/s12603-014-0555-8

Back to blog