Kísill og kollagen – hvernig tengjast þau?

Kísill og kollagen – hvernig tengjast þau?

Kollagen hefur verið eitt vinsælasta fæðubótarefnið undanfarin ár og margir taka það inn með því markmiði að styðja við húð, hár, neglur, liðamót og bein.

 

En vissir þú að kollagen vinnur ekki eitt og sér?

 

Til þess að líkaminn geti myndað og viðhaldið heilbrigðum bandvef þarf hann fjölbreytt úrval næringarefna. Þar á meðal er kísill, steinefni sem hefur fengið sífellt meiri athygli fyrir mögulegt hlutverk sitt í uppbyggingu bandvefs og kollagens.


Hvað er kollagen?

Kollagen er algengasta prótein líkamans og myndar stóran hluta af:

  • húðinni
  • sinum
  • liðböndum
  • brjóski
  • beinum
  • æðum

Það má líkja kollageni við "burðargrind" líkamans sem hjálpar til við að halda vefjum sterkum og sveigjanlegum.

Eftir því sem við eldumst minnkar náttúruleg framleiðsla kollagens. Þess vegna velja margir að taka kollagen sem fæðubót.


En hvert er þá hlutverk kísils?

Þótt kollagen fái oft mesta athyglina, er kísill eitt af þeim steinefnum sem talið er gegna mikilvægu hlutverki í myndun og uppbyggingu bandvefs.

Kísill finnst náttúrulega í líkamanum og er mest áberandi í:

  • húð
  • hári
  • nöglum
  • beinum
  • bandvef

Rannsóknir benda til þess að kísill geti tekið þátt í þeim ferlum sem tengjast myndun kollagens og styrk bandvefs.


Af hverju eru kísill og kollagen oft nefnd saman?

Margir hugsa eingöngu um kollagen þegar kemur að húð og liðamótum. Hins vegar er kollagen aðeins einn hluti af stærri mynd.

Til að byggja upp sterkan bandvef þarf líkaminn meðal annars:

  • prótein (amínósýrur)
  • C-vítamín
  • kopar
  • sink
  • kísil

Þessi næringarefni vinna saman að eðlilegri starfsemi líkamans og uppbyggingu bandvefs. Þess vegna velja margir að taka bæði kollagen og kísil sem hluta af daglegri rútínu.

Getur kollagen virkað án kísils?

Já, Kollagen getur vissulega verið gagnleg fæðubót eitt og sér. Hins vegar byggist myndun og viðhald bandvefs á samspili margra næringarefna en ekki aðeins einu.

Það er því skynsamlegt að hugsa um kollagen sem hluta af stærra næringarkerfi þar sem steinefni eins og kísill geta einnig skipt máli.


Kísill og húðin - Bandvefur húðarinnar samanstendur að stórum hluta af kollageni og elastíni.

Þar sem kísill tengist uppbyggingu bandvefs hefur hann einnig verið rannsakaður í tengslum við:

  • teygjanleika húðar
  • styrk húðar
  • heilbrigða uppbyggingu húðar

Þó rannsóknir á þessu sviði haldi áfram telja margir sérfræðingar að næg inntaka kísils geti verið mikilvægur hluti af heilbrigðu mataræði.

 


Kísill og hár

Hár samanstendur að mestu af keratíni en heilbrigður hársekkur og bandvefurinn í kring skipta einnig máli. Þess vegna velja margir að bæta bæði kollageni og kísli við daglega næringu þegar markmiðið er að styðja við heilbrigt hár.


Kísill og bein

Húðin er ekki það eina sem að inniheldur kollagen.

Bein eru einnig rík af kollageni og þar gegnir það mikilvægu hlutverki í styrk og sveigjanleika beinagrindarinnar.

Kísill hefur verið rannsakaður vegna mögulegs hlutverks síns í eðlilegri uppbyggingu beina og bandvefs og því eru þessi tvö efni oft nefnd saman þegar rætt er um stoðkerfið.

Margir velja að nota PURE frá GeoSilica samhliða kollageni, þar sem kísill og kollagen tengjast báðir uppbyggingu bandvefs líkamans.

 

Fyrir þá sem vilja bæta náttúrulegum kísli við daglega rútínu er GeoSilica PURE einföld leið til að fá fljótandi kísil úr íslenskri náttúru.

Back to blog