Kísill – Vanmetið steinefni

Kísill – Vanmetið steinefni

Þegar rætt er um vítamín og steinefni er oft talað um járn, kalk eða magnesíum. Færri vita hins vegar að kísill (silica) er eitt af þeim steinefnum sem finnst náttúrulega í líkamanum og gegnir mikilvægu hlutverki í uppbyggingu bandvefs, húðar, hárs, nagla og beina.

Með hækkandi aldri minnka náttúrulegar birgðir líkamans af kísli og því velja margir að bæta honum við sem fæðubót.

 

   

 

En hvað er kísill?

Kísill er náttúrulegt snefilsteinefni sem finnst víða í náttúrunni og í litlu magni í ákveðnum matvælum, til dæmis heilkorni, höfrum, grænmeti og steinefnaríku vatni.

Líkaminn getur ekki framleitt kísil sjálfur og því þarf hann að koma úr fæðu eða fæðubótarefnum.

 

Af hverju skiptir kísill máli?

Kísill kemur að fjölmörgum ferlum í líkamanum og hefur verið rannsakaður sérstaklega vegna tengsla sinna við:


Heilbrigða húð

Kísill er talinn taka þátt í myndun bandvefs sem gefur húðinni styrk og mýkt.

Sterkara hár

Margar konur leita að lausnum þegar þær finna fyrir hárlosi eftir meðgöngu, hormónabreytingar eða mikið álag.

Þó að hárlos geti átt sér margar skýringar velja margar að styðja við hárið með næringu þar sem kísill er eitt þeirra steinefna sem tengjast uppbyggingu hársins. Kísillinn virkar þó alveg jafnvel fyrir karlmenn, en einhverra hluta vegna hefur hann notið meiri vinsælda hjá konum.

Sterkari neglur

Brothættar og klofnar neglur geta verið merki um að líkaminn þurfi meiri næringu. Kísill er eitt þeirra steinefna sem tekur þátt í uppbyggingu nagla.

Bein og bandvefur

Kísill hefur einnig verið rannsakaður vegna mögulegs hlutverks síns í myndun beina, brjósks og bandvefs.

Þess vegna velja margir sem stunda reglulega hreyfingu eða vilja styðja við liðamót og stoðkerfi að tryggja næga inntöku kísils.

 

Hvað er fljótandi kísill?

Ekki eru allar kísilvörur eins.

Flestar vörur á markaðnum eru í töflu- eða hylkjaformi en GeoSilica PURE inniheldur 100% náttúrulegan fljótandi kísil sem unninn er úr íslenskum jarðhitasvæðum.

PURE inniheldur eingöngu náttúrulegan kísil án viðbættra vítamína eða steinefna og hentar því þeim sem vilja bæta hreinum kísli inn í daglega rútínu sína.


Fyrir hverja hentar GeoSilica PURE?

  • PURE  100% kísilsteinefni hentar öllum sem vilja:
  • styðja við heilbrigða húð
  • styðja við hár og neglur
  • bæta náttúrulegum kísli við mataræðið
  • velja náttúrulega fæðubót án óþarfa aukaefna
  • taka fljótandi steinefni sem auðvelt er að innbyrða


Hvers vegna velja margir fljótandi kísil?

Margir kjósa fljótandi fæðubótarefni þar sem auðvelt er að taka þau daglega, hvort sem það er ein og sér eða út í vatn eða annan drykk.

PURE er framleitt á Íslandi úr náttúrulegu jarðhitavatni og inniheldur aðeins hreinan, fljótandi kísil.


Hvernig er best að taka kísil?

Ráðlagður dagskammtur af PURE er 1 matskeið á dag, eða 10ml. Eins og með önnur steinefni er regluleg notkun lykillinn að því að viðhalda stöðugri inntöku.


Náttúrulegur kísill frá Íslandi

GeoSilica hefur sérhæft sig í framleiðslu á náttúrulegum fljótandi kísli sem unninn er úr íslenskri jarðhitaauðlind.

PURE inniheldur eingöngu kísil og hentar þeim sem vilja hreina kísilvöru, hvort sem markmiðið er að styðja við húð, hár, neglur eða einfaldlega bæta náttúrulegu steinefni við daglega næringu.


Kísill er eitt af þeim steinefnum sem fær oft minni athygli en mörg önnur, þrátt fyrir að gegna mikilvægu hlutverki í líkamanum. Fyrir þá sem vilja bæta náttúrulegum kísli við mataræðið er GeoSilica PURE einföld leið til að fá 100% náttúrulegan fljótandi kísil úr íslenskri náttúru.

Back to blog