Kísill á breytingaskeiðinu – kynntu þér hvernig kísill og steinefni geta stutt við hár, húð, neglur, liði og vellíðan kvenna á breytingaskeiðinu.

Kísill á Breytingaskeiðinu

Kísill á breytingaskeiðinu – Stuðningur við hár, húð, liði og vellíðan

Breytingaskeiðið er tímabil sem hefur áhrif á konur á mismunandi hátt. Hormónabreytingar geta meðal annars haft áhrif á húð, hár, neglur, liðamót og orku og því leita margar konur leiða til að styðja betur við líkamann á þessum tímamótum.

Síðastliðið ár höfum við hjá GeoSilica haldið vinsæla fræðsluviðburði um breytingaskeiðið ásamt Röggu Nagla, þar sem fjallað hefur verið um næringu, hreyfingu, svefn og hvernig hægt er að styðja við líkamann á þessu nýja lífsskeiði. Á þessum viðburðum hafa margar konur einnig kynnst þeirri samsetningu sem við köllum gjarnan „breytingaskeiðsþrennuna“RECOVER, RENEW og REPAIR.

 

Frá viðburði GeoSilica og Röggu Nagla sem að haldinn var fyrir konur 40+ sem að æfa hjá Hamar í Hveragerði 

 

En hvernig getur kísill stutt við konur á breytingaskeiðinu?

Þegar estrógenmagn lækkar verða breytingar í bandvefjum líkamans. Margar konur taka eftir að:

  • Húðin verður þurrari og missir teygjanleika.
  • Hárið verður fíngerðara eða þynnist.
  • Neglur brotna auðveldlega.
  • Liðir og sinar verða stífari.
  • Endurheimt eftir álag verður hægari.

Kísill tekur þátt í myndun kollagens og er mikilvægt byggingarefni fyrir húð, hár, neglur og bandvefi. Þó hann komi ekki í stað hormóna eða meðhöndlunar við breytingaskeiðseinkennum velja margar konur að taka inn kísil sem hluta af daglegri heilsurútínu.

Breytingaskeiðsþrennan frá GeoSilica

Á fræðsluviðburðunum með Röggu Nagla hefur þessi samsetning vakið mikinn áhuga:

RECOVER - Fyrir vöðva og taugar

Inniheldur náttúrulegan kísil og magnesíum sem getur stutt við eðlilega vöðvastarfsemi og dregið úr þreytu og þrekleysi. Margir velja RECOVER ef svefn, endurheimt eða vöðvaspenna eru farin að breytast.

RENEW - Fyrir hár, húð og neglur

Inniheldur kísil ásamt sinki og kopar sem stuðla að eðlilegu viðhaldi húðar, hárs og nagla. RENEW er mest selda vara GeoSilica og er vinsæl meðal kvenna sem að stríða  við hárlos og/eða þunnt hár.

REPAIR - Fyrir liði og bein

Inniheldur kísil og mangan sem stuðlar að eðlilegri myndun bandvefs. Margar konur velja REPAIR til að styðja við liðamót, sinar og bandvefi sem geta orðið viðkvæmari með aldrinum.

 

 

Heildræn nálgun skiptir mestu máli

Engin ein vara leysir öll einkenni breytingaskeiðsins. Bestur árangur næst yfirleitt með því að huga að heildarmyndinni:

  • Regluleg hreyfing, sérstaklega styrktarþjálfun.
  • Próteinríkt og næringarríkt mataræði.
  • Góður svefn.
  • Streitustjórnun.
  • Stuðningur með næringarefnum þegar við á.

Það er einmitt þessi heildræna nálgun sem við höfum lagt áherslu á á viðburðunum með Röggu Nagla - að gefa konum verkfæri til að líða betur og taka breytingaskeiðinu af meiri þekkingu og sjálfstrausti.


Breytingaskeiðið er nýr kafli í lífinu, ekki endapunktur. Með réttri fræðslu, heilbrigðum lífsstíl og markvissum stuðningi geta margar konur fundið mikinn mun á líðan sinni.

Ef þú ert að upplifa breytingar á húð, hári, nöglum, endurheimt eða bandvefjum gæti verið þess virði að skoða hvort RECOVER, RENEW og REPAIR henti sem hluti af þinni daglegu rútínu.

Algengar spurningar

Hjálpar kísill við hitakófum?

Nei, kísill hefur ekki áhrif á hitakóf eða hormónabreytingarnar sjálfar. Hann getur hins vegar stutt við húð, hár, neglur og bandvefi sem oft verða fyrir áhrifum á breytingaskeiðinu.

Af hverju velja margar konur RECOVER, RENEW og REPAIR saman?

Því vörurnar styðja við ólíka þætti líkamans – endurheimt og vöðvastarfsemi, húð og hár, ásamt bandvefjum og liðamótum og mynda þannig vinsæla samsetningu á breytingaskeiðinu. 

Má taka fleiri en eina GeoSilica vöru í einu?

Já, það er allt í góðu. Sumir taka t.d RENEW eftir morgunmat og RECOVER á kvöldin fyrir svefn. Við mælum alltaf með því að skoða einnig önnur vítamín eða fæðubót sem að þú tekur inn svo að þú farir ekki yfir ráðlagðan dagsskammt. 

Back to blog