Þreyta og orkuleysi: Járn og D-vítamín

Þreyta, orkuleysi og léleg einbeiting eru eitthvað sem flest okkar kannast við. Svefn, álag, hreyfing og næring hafa auðvitað mikil áhrif á orkuna okkar en vítamín og steinefni skipta líka máli.

Tvö mikilvæg næringarefni í því samhengi eru járn og D-vítamín – og þau eru einmitt hluti af REFOCUS fyrir hug og orku frá GeoSilica.

Varan inniheldur:

  • 100 mg af kísli
  • 14 mg af járni
  • 15 µg af D-vítamíni

REFOCUS fyrir hug og orku er vottuð af The Vegan Society

 

Járn fyrir orku og einbeitingu

Járn gegnir mikilvægu hlutverki í líkamanum. Það stuðlar meðal annars að eðlilegri myndun rauðra blóðkorna og blóðrauða og eðlilegum súrefnisflutningi um líkamann.

  • Járn stuðlar einnig að:
  • minni þreytu og þreytutilfinningu
  • eðlilegum orkugæfum efnaskiptum
  • eðlilegri vitrænni starfsemi
  • eðlilegri starfsemi ónæmiskerfisins

D-vítamín – sérstaklega mikilvægt á Íslandi

D-vítamín stuðlar meðal annars að eðlilegri starfsemi ónæmiskerfisins, viðhaldi eðlilegra beina og eðlilegri vöðvastarfsemi.

Á Íslandi, þar sem sólarljós er takmarkað stóran hluta ársins, er sérstaklega mikilvægt að huga að nægilegri inntöku D-vítamíns. En það er eitt áhugavert við D-vítamínið í REFOCUS.

 

Hvernig gerum við REFOCUS vegan?

Þegar við þróuðum REFOCUS var mikilvægt fyrir okkur að varan yrði 100% vegan, líkt og aðrar vörur GeoSilica.

D3-vítamín í fæðubótarefnum er oft unnið úr hráefnum úr dýraríkinu. Við vildum finna annan kost og völdum því D3-vítamín unnið úr þörungum.

Þannig gátum við þróað fæðubótarefni sem sameinar íslenskan kísil, járn og vegan D3-vítamín án þess að gefa eftir varðandi þau gildi sem vörur GeoSilica byggja á.


REFOCUS fyrir hug og orku 

REFOCUS er íslenskt fæðubótarefni sem að kemur í vökvaformi og inniheldur kísil, járn og D-vítamín.

Ráðlagður dagskammtur er 1 matskeið eða 10 ml. 

REFOCUS er einföld leið til að bæta þessum næringarefnum inn í daglega rútínu – með járni sem stuðlar að minni þreytu og eðlilegri vitrænni starfsemi og D-vítamíni sem meðal annars styður við eðlilega starfsemi ónæmiskerfisins.

Varan hentar vel fyrir einstaklinga sem finna fyrir síþreytu, einbeitingarskorti eða orkuleysi og vilja styðja við einbeitingu, skerpu og andlega frammistöðu. Varan getur einnig hentað þeim sem upplifa mikið álag, streitu eða áreiti í daglegu lífi og vilja styðja við jafnvægi í taugakerfinu og stöðuga orku yfir daginn.

 

REFOCUS er sérstaklega vinsæl meðal einstaklinga sem eru með marga bolta á lofti, námsmanna og þeirra sem leita að náttúrulegum stuðningi fyrir hug og orku án örvandi efna eins og koffíns eða orkudrykkja.

Back to blog